Búið að vera bara þvílíkt gaman síðustu daga.... Þrátt fyrir að
skólinn sé að stressa mann í sundur!!!
Síðasta ... humm.. æji ég man ekkert hvaða dag... mið eða fim eða
eikkað sollis í síðustu viku skelltum ég og Brynjólfur okkur suður.
Vorum í okkar mesta sakleysi í hádegismat uppí skóla þegar
bekkjabræður okkar Friðgeir og Bjarni komu til okkar og peppuðu
okkur upp í það að fara suður í Ölfushöllina á Hrafnsmessu sem var
hestasýning. Þeim tókst verkefni sitt gríðalega vel, svo pantaðir
voru miðar og planið var að bruna suður.
Það var smá vandamál því daginn eftir áttum við að skila 30%
hagfræði verkefni sem enginn var byrjaður á........
En það endaði þannig að Bjarni og Friðgeir fóru ekki en við
Brynjólfur vorum svo æst í að fara að við hringdum í vin okkar
Pétur sem var líka að fara og fengum far með honum!!! Verkefnið var
gert á leiðinni og ég setti það uppí tölvunni, eða svona eins mikið
og ég gat þangað til hún varð batteríslaus.
Sýningin var svo bara algjör djöfulsins snilld!!!!!! Hrossin alveg
með eindæmum flott, eða allavega megnið af þeim. Ég allavega mjög
hamingjusöm!
Einhvað var nú drukkið af bjór, og við sátum á Ingólfscafé sem er í
höllinni líka og spjölluðum við fólk til hálf 2 eða 2.
Þá skutluðum við vinkon minni og vinkonu hennar á Selfoss á
dansiball. Við keyptum okkur mikið mikið að éta og brunuð heim,
ábyggilega einhvað að verða 3.
En við vorum búin að skemmta okkur mikið mikið og við Brynjólfur
komum okkur súper vel fyrir í bílnum og reyndum að sofa á leiðinni
heim og Pétur keyrði.
Verkefnið var nokkurnveginn tilbúið, en þó ekki alveg, nokkur
tölvuvinna eftir.
Við komum heim kl korter í 7, ég fór beint í sturtu meðan
Brynjólfur pikkaði inn nokkrar tölur og svo kláraði ég það. Við
lögðum af stað uppá hóla hálf 8 og fluttum verkefnið stuttu eftir
það. Eiginlega bara þvílíkt flott verkefni og ég býst við nokkuð
hárri tölu
Svo var Gróan hérna um helgina. hún kom á fös,kvöld og við kíktum á
föstudagssýningu Tekið til kostanna, sem er líka hestasýning. Eftir
það fórum við bara heim, spara okkur fyrir laugardaginn því þá var
aðalsýningin.
Það var eiginlega bara snilld!!!! Sýningin var mjög góð og gaman.
og eftir hana var farið á Ólafshús. Von var að spila og það var
eiginlega bara geggjað gaman! Fólk alveg á fullu á dansgólfinu og
það var alveg troðið!
Við Brynjólfur fórum bara heim eftir Ólafshús en Gróa fór uppá
Hóla. Hún kom svo í Fagranes alveg draugþunn og átti sárlega mikið
bágt.... En þetta var bara snilldar helgi. Gróa skoðaði hrossin
okkar Binna og aðstæður og leist bara vel á held ég
En núna er bara mikill mikill lærdómur og lítið annað gert. Við
Brynjólfur erum ekkert að ríða út, heldur bara einbeita sér að
skólanum, því það er svo lítið eftir!!!